Söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir er búin að trúlofast kærastanum Luca Ellis. Parið býr í Los Angeles í Kaliforníu og gerir það gott á tónlistarsviðinu. Samkvæmt Facebook-síðu Önnu Mjallar heitbundust þau hvort öðru í dag.
Anna Mjöll og Luca Ellis opinberuðu samband sitt í maí og hefur ástin blómstrað á milli þeirra.
Annars hefur árið ekki verið auðvelt hjá söngkonunni því í nóvember hitti hún fyrrverandi eiginmann sinn, Cal Worthington, í réttarsal í Los Angeles þar sem lögmaður hans ásakaði hana um að hafa tekið 25 milljónir út af sameiginlegum bankareikningi þeirra. Það er þó eftir að koma í ljós hver niðurstaða dómsmálsins verður.