Björk kveikti í servíettu

Björk Guðmundsdóttir
Björk Guðmundsdóttir Eggert Jóhannesson

„Ég er búin að vera á Íslandi skem­ur en 12 klukku­stund­ir og sit á sama veit­ingastað og Björk,“ skrif­ar blaðakon­an Al­ex­andra Topp­ing sem kom til lands­ins í vik­unni en hún skrif­ar grein­ar fyr­ir breska dag­blaðið The Guar­di­an, oft­ar en ekki um jafn­rétt­is­mál. Þá bæt­ir hún skömmu síðar við að Björk hafi kveikt í serví­ettu.

Topping hefur komið víða við þá tvo daga sem hún hefur dvalið á landinu, tekið viðtöl á Mokka og hitt íslenska stjórnmálaleiðtoga, þar á meðal Guðmund Steingrímsson en hún segir frá dvöl sinni hér á Twitter. Hún segir frá því að íslenskir stjórnmálamenn séu allt öðruvísi en þeir bresku og skrif hennar eru þeim íslensku í vil. „Það er eftirtektarvert hvernig stjórnmálamenn landsins tala eins og venjulegt fólk og svara spurningum beint.“
Þá heimsótti Topping Borgarholtsskóla og vakti það eftirtekt hennar að nemendur skólans færu úr skónum í anddyri byggingarinnar.
Guðmundur Steingrímsson.
Guðmund­ur Stein­gríms­son. mbl.is
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda