Hjartaknúsarinn Ryan Gosling var staddur á Seljaveginum rétt í þessu. Tinna Brá, eigandi verslunarinnar Hrím, var svo heppin að líta goðið augum.
Tinna var að keyra son sinn á æfingu hjá Mjölni þegar hún kom auga á Gosling og smellti mynd af honum. „Ég veit ekki hvað hann var að gera en hann var sjúklega sætur en voða venjulegur samt.“