Spíttbát Skúla Mogensen, forstjóra Wow air, var stolið úr læstri skemmu í Hvammsvík í Hvalfirði um síðustu helgi. Báturinn var á bátakerru þegar honum var stolið. Spíttbáturinn er af gerðinni Champion Allante S565 og er um 6 metra langur. Spíttbáturinn er með alvöru vél, Volvo Penta, árgerð 2005.
Skúli býður 500.000 krónur í fundarlaun þeim sem geta upplýst málið þannig að báturinn skili sér aftur til eiganda.
„Ég vona svo sannarlega að báturinn finnist og að þessir þrjótar fari bak við lás og slá,“ segir Skúli Mogensen í samtali við Smartland.