Ásdís Rán Gunnarsdóttir ætlar að eyða hluta af vetrinum á Íslandi en hún hefur verið búsett í Búlgaríu síðustu ár. Hún flutti þangað upphaflega þegar fyrrverandi eiginmaður hennar, Garðar Gunnlaugsson, fékk þar vinnu sem fótboltamaður. Þegar leiðir Ásdísar Ránar og Garðars skildi í byrjun árs 2012 flutti hann heim til Íslands en hún ákvað að vera áfram úti.
Síðan þá hefur hún sinnt störfum sínum bæði hérlendis og í Búlgaríu. Nú er komið að ákveðnum kaflaskilum í lífi Ásdísar Ránar og staðfesti hún í samtali við Smartland að hún ætlaði að eyða meiri tíma á Íslandi á komandi vetri. Hún vildi þó ekki gefa upp að hvaða verkefni hún væri að vinna - það myndi koma í ljós síðar.
Í dag spókaði Ásdís Rán sig um á Laugaveginum ásamt systur sinni og dóttur. Eins og sjá má er bleiki liturinn algerlega málið.