Fyrrverandi alheimsfegurðardrottningin og lögfræðingurinn Unnur Birna Vilhjálmsdóttir á von á sínu öðru barni með unnusta sínum Pétri Rúnari Heimissyni.
Vísir.is greinir frá því að Unnur Birna eigi að eiga barnið í apríl en fyrir eiga Unnur Birna og Pétur dótturina Lilju Karítas sem er tveggja og hálfs árs.