Heiða Kristín Helgadóttir, varaformaður Besta flokksins og framkvæmdastjóri Bjartrar framtíðar, er búin að finna ástina. Sá heppni heitir Guðmundur Kristján Jónsson og er í námi í skipulagsfræði við University of Waterloo.
Parið hnaut um hvort annað á Ísafirði síðasta sumar og hafa þau verið óaðskiljanleg síðan. Þau trúlofuðu sig í nóvember en gerðu það opinbert á Facebook í dag.
Smartland Mörtu Maríu óskar þeim til hamingju með ástina og hamingjuna.