Pálmi Haraldsson oft kenndur við Fons og Iceland Express, kvæntist Birnu Guðmundsdóttur viðskiptafræðingi í dag í Fríkirkjunni. Presturinn Hjörtur Magni Jóhannsson gaf brúðhjónin saman.
Í kvöld ætla þau að bjóða vinum sínum til humarveislu á heimilinu sínu við Sólvallagötu 4. Hjónin eiga von á sínu fyrsta barni saman og er barnið væntanlegt í heiminn í byrjun sumars.
Við óskum þeim til hamingju með daginn.