Forsetafrúin Dorrit Moussaieff flýgur yfirleitt með flugfélaginu WOW air. Í dag var hún á leið til Lundúna og aldeilis til í að slá á létta strengi með flugliðunum. Í eitt andartak smellti hún sér í flugfreyjubúning, farþegum til mikillar skemmtunar. Eins og Íslendingar vita er leitun að skemmtilegri konu en henni Dorrit okkar.