Alheimsfegurðardrottningin og lögmaðurinn Unnur Birna Vilhjálmsdóttir gekk að eiga unnusta sinn, Pétur Rúnar Heimisson, í gær. Veðrið lék við brúðhjónin en eftir mikla vætutíð skein sól á Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíðinni þar sem hjónin voru gefin saman. Eftir athöfnina var slegið upp veislu í sveitinni. Hjónin eiga saman tvö börn.