Ásdís Rán Gunnarsdóttir er ekki ánægð með forsíðu Séð og Heyrt en þar kemur fram að stjúpdóttir hennar hafi tekið af henni bíllyklana en fréttir bárust af því á dögunum að kærastinn hennar hafi fært henni Audi A5.
„Enn og aftur þá langar mig að biðja fólk um að taka forsíðu Séð og Heyrt ekki trúanlega ekki frekar en óléttuna. Ég hef ekki hugmynd um hvað þessi forsíðugrein er um, kannast ekkert við þetta og finnst mjög leitt að þeir séu að búa til svona óþarfa vesen,“ segir Ásdís Rán á Facebook-síðu sinni.
HÉR er hægt að lesa nánar um bílamálið.