Sjónvarpsstjarnan Andri Freyr Viðarsson og unnusta hans, Hjördís Erna Þorgeirsdóttir, eignuðust dóttur í gærmorgun.
Andri Freyr birti mynd af dóttur sinni á samfélagsmiðlinum Facebook með þessum orðum:
„Mont: Þessi skvísa breytti lífi mínu eldsnemma í gærmorgun. Nú byrjar ballið.“
Smartland Mörtu Maríu óskar Andra Freyr og Hjördísi Ernu hjartanlega til hamingju með frumburðinn.
Þess má til gamans geta að Gunna Dís, sem stýrir þættinum Virkir morgnar á Rás 2 ásamt Andra Frey eignaðist dreng hinn 21. maí 2013 eða á afmælisdegi Andra Freys eins og sagt var frá HÉR.