Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur sett einbýlishús sitt, Birkihlíð 14 á Sauðárkróki, á sölu. Húsið er á tveimur hæðum og 247 fm að stærð. Íbúðin er 122 fm að stærð, neðri hæðin er 73 fm og bílskúrinn er 52 fm.
Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, rúmgóð stofa, eldhús, búr og baðherbergi.
Á dögunum skildi Gunnar Bragi við eiginkonu sína, Elvu Björk Guðmundsdóttur.
<strong><a href="http://www.krokurinn.is/eign/id/?id=107800">HÉR </a>er hægt að skoða húsið nánar.</strong>
Birkihlíð 14 á Sauðárkróki.