Söngvarinn Geir Ólafsson á von á sínu fyrsta barni með unnustu sinni, Adriönu Patriciu Sanchez Krieger. Parið er búið að vera saman síðan 2012 en þau kynntust 2009. Í samtali við Smartland Mörtu Maríu sagðist Geir vera í skýjunum.
„Það er von á barninu í byrjun janúar,“ segir hann og bætir við:
„Þetta er alveg yndisleg tilfinning. Þetta er alltaf að verða raunverulegra og raunverulegra. Ég er að upplifa þessa tilfinningu í fyrsta skipti og er mjög þakklátur fyrir það. Það eina sem ég bið um er að barnið verði heilbrigt,“ segir Geir.
Aðspurður hvort þau ætli að fá að vita kynið segir hann að Adriana hafi mikinn áhuga á því. „Mér skilst að margir geri þetta.“
Geir er fertugur og segir að það að verða faðir í fyrsta skipti sé mikil guðsgjöf.
„Eins og ég hef alltaf sagt og hef oft verið að pæla í þá fær þetta mig til þess að trúa meira og meira á guð. Þetta eru gleðitíðindi og gladdi mitt litla hjarta mikið. Ég er heppinn að eiga svona yndislega unnustu. Ég er viss um að hún á eftir að verða yndisleg móðir.“
Ástarsamband Adriönu og Geirs er sérstakt að því leytinu til að þau búa hvort í sínu landinu. Hún er frá Kólumbíu en er búsett í Madríd á Spáni. Þau hafa því alltaf verið í fjarbúð en hann er búsettur á Íslandi. Aðspurður hvort þetta fyrirkomulag muni eitthvað breytast eftir að barnið kemur í heiminn gerir hann ráð fyrir tíðari ferðalögum á milli landa.
„Þetta hefur virkað vel hjá okkur. Við finnum það alveg að við viljum vera meira saman og vinnum að því að sinna okkar sambandi eins vel og hægt er. Nú eru breytingar á næsta leiti og þar af leiðandi þarf maður að sinna því og taka einn dag í einu.“