Aðstoðarmaðurinn vaknaði með túrista í stofunni

Teitur Björn Einarsson.
Teitur Björn Einarsson.

Teitur Björn Einarsson aðstoðarmaður fjármálaráðherra vaknaði upp við skrýtna sjón í morgunsárið. Í stofunni hjá honum lá túristinn Karólína sem villst hafði af leið. Sambýliskona Teits Björns, Margrét Gísladóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður Gunnars Braga Sveinssonar kippti sér ekkert upp við þetta. 

Teitur Björn deildi sögunni á Facebook-síðu sinni: 

„Mér er sagt að túristinn sé að sækja í sig veðrið hér á landi, vilji kynnast heimamönnum og upplifa ævintýri. Í því ljósi var það kannski svona eftir á að hyggja ekkert rosalega óvenjulegt að vakna í morgun, fara fram og sjá að inni í stofu hafði túristi hreiðrað um sig í svefnpoka í sófanum alveg sultuslakur. Standandi þarna á nærbrókinni var lítið annað hægt að gera en að bjóða góðan dag og spyrja yfirvegað hver væri þarna á ferð svona snemma morguns. Túristinn rankaði við sér, leit á mig og stóð greinilega ekki alveg á sama. Ótraustri röddu spurði hann á erlendri tungu hvort ég væri ekki örugglega Sara - sem ég svaraði neitandi og hér ætti heldur engin Sara heima. Vandaðist þá þessi viðkvæma staða okkar á milli mjög til muna.

Fátt annað í stöðunni á þeim tímapunkti en að hverfa til baka inn í svefnherbergi, klæða sig og upplýsa makann um að það væri kominn gestur og hann væri inn í stofu. Varð smá hissa þegar Margrét spurði fyrst hvort hann væri lifandi – ég hafði nú ekki panikkað svo ofboðslega - en áttaði mig svo á því að hún héldi auðvitað að litla ljónið á heimilinu hefði í enn eitt skiptið borið inn í íbúðina eitthvað rottukvikindi. Ég leiðrétti hana og sagði að það væri ekki mús inni í stofu heldur ráðavilltur túristi, það væri allt önnur tegund. Með því að breiða þögul sængina yfirvegað yfir höfuðið var ljóst að það var í mínum verkahring að greiða úr þessari vitleysu. Vopnaður þeim ráðum og hvatningu fór ég fram að nýju inn í stofu þar sem gesturinn var þá risinn á fætur, fálmandi skjálfandi eitthvað í símanum sínum. Náðum að halda áfram basic samtali um hvað, ha, hvernig, af hverju var hurðin ekki læst, hver, hvenær og slíkt - sagðist heita Karolína, væri nýkomin til landsins og átti að hitta Söru hér á Barónstígnum en gat ekki hringt í hana þar sem síminn virkaði ekki. Ég tók jákvæðu týpuna á þetta og sagði þetta hressandi rangan misskilning, hún væri á réttum stað en bara í rangri íbúð, það hefði verið hrein tilviljun að allt hefði verið opið upp á gátt í nótt og einfalt máli væri að hringja í Söru og kippa þessu í liðinn. Kannski ekki einfalt en eftir annan hring á helstum atriðum með Söru í símanum um hver, hvað, hvernig, hvenær og slíkt komst það helsta til skila og Sara stuttu seinna komin niður í þetta óvænta morgunpartí að ná í túristann sinn. Túristinn afsakaði sig innilega og þakkaði fyrir sig á leið sinni út. Ég bauð að nýju góðan dag og hana velkomna til Íslands. Túristinn maður!“

Margrét Gísladóttir.
Margrét Gísladóttir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál