Hjónin Inga Linda Karlsdóttir eigandi framleiðslufyrirtækisins Skot og Árni Hauksson fjárfestir og eigandi Vogabakka eru flutt í sundur. Þau eru nú skráð sem hjón ekki í samvistum í Þjóðskrá Íslands. Hjónin sem eru ekki í samvistum kynntust fyrir um tveimur áratugum þegar þau unnu saman á DV en þar var hún blaðamaður en hann framkvæmdastjóri.
Allar götur síðan gustaði af parinu, sér í lagi á vinnumarkaði. Henni sem framleiðanda og fjölmiðlakonu og honum sem fjárfesti og eiganda Vogabakka sem gengur út á sölu og kaup á hlutabréfum og hefur fyrirtækið verið rekið með töluverðum hagnaði.
Hjónin hafa búið í um 800 fm einbýlishúsi við Mávanes í Garðabæ en fasteignamat hússins í ár er rúmlega 290 milljónir. Nú er Árni hins vegar fluttur í hús vina sinna í Fossvogi en Smartland fjallaði um húsið í fyrra þegar það var auglýst til sölu.