Útvarps- og sjónvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson er á lausu. Andri er á meðal stjórnenda Síðdegisútvarpsins á Rás 2 en hann hefur stýrt fjölda þátta á Ríkisútvarpinu í gegnum árin.
Andri Freyr var áður í sambúð með Hjördísi Ernu Þorgeirsdóttur og eiga þau eina dóttur saman sem er fædd árið 2014.
Andri er án efa á meðal þekktustu útvarpsmanna landsins en hann reis til frægðar í morgunþættinum Virkir morgnar, sem hann stýrði ásamt Guðrúnu Dís Emilsdóttur. Andri hefur einnig látið til sín taka í sjónvarpinu en hann heillaði þjóðina í þáttunum Andri á flandri sem sýndir voru á RÚV.