Það var nóg um að vera í síðustu viku. Fólk klæddi sig í vetrarföt á skíðum á milli þess sem það fagnaði það konudeginum á undirfötunum. Á meðan barnafjölskyldur flugu heim frá Tenerife fór Patrik Atlason og Daniil til Dúbaí enda ekki þekktir fyrir neina meðalmennsku.
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, eða Prettyboitjokko, skellti sér til Dúbaí í vikunni ásamt Daníel Moroshkin, betur þekktur sem Daniil, en þeir voru ásamt tökuliði að taka upp tónlistarmyndband við lag sem þeir eru að gefa út saman í byrjun mars.
Áhrifavaldurinn Sigríður Margrét Ágústsdóttir átti notalegar stundir á Edition-hótelinu við höfnina í Reykjavík þar sem hún klæddi sig upp í guðdómlegan síðkjól með bert í bakið.
Raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime var gestur í Vikunni með Gísla Marteini, en hann stillti sér að sjálfsögðu upp í sófanum og með sjálfum Gísla Marteini eftir kvöldið og segir að það sé „lowkey“ hjóna svipur með þeim.
Áhrifavaldurinn Hildur Sif Hauksdóttir frumsýni nýja kærastann, útvarpsmanninn Pál Orra Pálsson, á Instagram með fallegri afmæliskveðju.
Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn og IceGuys-stjarnan Rúrik Gíslason naut lífsins á Riviera Maya-svæðinu í Mexíkó þar sem hann gisti á sannkölluðu lúxushóteli.
Friðþóra Sigurjónsdóttir, kærasta tónlistarmannsins Patriks Atlasonar, fagnaði því í vikunni að vera orðin 23 ára. Af myndum að dæma átti hún frábæran afmælisdag þrátt fyrir að Patrik hafi verið í öðrum heimshluta.
Birgitta Líf Björnsdóttir, áhrifavaldur og markaðsstjóri World Class, var heppin með veður í fyrsta göngutúrnum með soninn. Drengurinn er fyrsta barn hennar og Enoks Jónssonar, en hann kom í heiminn 8. febrúar síðastliðinn.
Hannes Þór Halldórsson, leikstjóri og fyrrverandi markmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, skellti sér í helgarferð á Siglufjörð í bongóblíðu með góðum hópi.
Tónlistarkonan Katrín Myrra Þrastardóttir fór til Englands ásamt fjölskyldu sinni og átti þar góðar stundir.
Helga Margrét Agnarsdóttir, laganemi, dansari og áhrifavaldur gaf fylgjendum sínum smá innsýn í helgina.
Leikarinn Haraldur Ari Stefánsson var spenntur fyrir frumsýningu söngleiksins Eitruð lítið pilla á stóra sviði Borgarleikhússins.
Sunneva Eir Einarsdóttir skellti sér í sparifötin og skemmti sér drottningarlega í Hörpunni.
Áhrifavaldurinn og athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir sýndi frá lífinu í ensku sveitinni.
Söngkonan Sigga Ózk birti myndir frá æfingu örfáum dögum áður en hún steig á svið sem einn keppenda Söngvakeppni sjónvarpsins. Atriði söngkonunnar var valið áfram.
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson fagnaði konunum í lífi sínu á konudaginn með fallegri færslu.
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson rifjaði upp skemmtilega minningu. Hann birti gamla mynd frá því að hann fór í búning, þóttist vera prestur og gaf góða vini saman.
Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir birti mynd af sér á undirfötunum og óskaði öllum konum til hamingju með konudaginn.
Tónlistarmaðurinn Valdimar skellti sér til Vestmannaeyja og leiddist ekki. Það þarf greinilega ekki að vera útihátíð til þess að gera sér ferð til Vestmannaeyja.
Tónlistarkonan Svala fagnaði konudagshelginni með því að senda góð skilaboð um sjálfsást.
Camilla Rut Rúnarsdóttir kíkti í miðbæinn.
Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Sara Jasmín Sigurðardóttir skellti sér út á lífið.