Instagram: Tónleikar, árshátíð og allir í hlébarðamynstri!

Vikan var fjörug á Instagram!
Vikan var fjörug á Instagram! Samsett mynd

Vikan á Instagram var stútfull af stuði og stemningu! Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir hélt þrenna tónleika í Hörpu, hjónin Milla Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson skemmtu sér á árshátíð ráðhússins og Sunneva Einarsdóttir fékk sér hvolp.

Það sem einkenndi vikuna líka var hlébarðamynstur, en að undanförnu hefur mynstrið verið með skemmtilega endurkomu í tískuheiminn og er það allra heitasta um þessar mundir – enda voru þau Hrafnhildur Haraldsdóttir, Patrik Atlason, Ágúst Beinteinn Árnason og Friðþóra Sigurjónsdóttir öll klædd í hlébarðamynstur!

Troðfullt í þrígang!

Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir fyllti Eldborgarsal Hörpu á föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. Landsmenn voru áhugasamir um tónleikana og seldist upp á tvenna tónleika Laufeyjar á nokkrum mínútum. Þá var aukatónleikum bætt við og seldist einnig upp á þá. 

View this post on Instagram

A post shared by laufey (@laufey)

Í skíðaferð í Jasná!

Förðunarfræðingurinn og læknaneminn, Valdís Harpa Porča, skellti sér í skíðaferð til Jasná í Slóvakíu þar sem hún átti ljúfar stundir í góðra vina hópi.

Afmælisskvísa!

Hlaðvarpsstjarnan Birta Líf Ólafsdóttir hélt upp á afmælið sitt um helgina, en þemað var morðráðgátur og grímur. 

View this post on Instagram

A post shared by Birta Líf (@birtalifolafs)

Alsæl í Disneylandi!

TikTok-stjarnan og förðunarfræðingurinn, Embla Wigum, brosti sínu breiðasta þegar hún heimsótti Disneyland í París.  

Tenerife draumurinn!

Það er óhætt að segja að Hulda Ósmann lifi draumalífi margra Íslendinga um þessar mundir, en hún er búsett á Tenerife og getur því spókað sig um á bikiníi allan ársins hring. 

Stemning í Reykjavík!

Hjónin Milla Magnúsdóttir aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra og Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur skemmtu sér greinilega vel á árshátíð ráðhússins.

Vinkonuæfing!

Fasteignasalinn Tara Sif Birgisdóttir og plötusnúðurinn Dóra Júlía Agnarsdóttir tóku vel á því á boxæfingu.

Ljúfa líf!

Lífið leikur við fyrrverandi frjálsíþróttadrottninguna Dórótheu Jóhannesdóttur þessa dagana, en hún er stödd í draumafríi á Kanarí ásamt fjölskyldu sinni. 

Viðburðarrík vika!

Vikan var sannarlega viðburðarrík hjá áhrifavaldinum og hlaðvarpsstjörnunni Sunnevu Einarsdóttir. Hún mætti að sjálfsögðu í afmælisveislu vinkonu sinnar, Birtu Lífar, en í vikunni kynnti hún einnig nýjan fjölskyldumeðlim fyrir fylgjendum sínum.

Hlébarðamynstrið aftur komið í tísku!

Fegurðardrottningin Hrafnhildur Haraldsdóttir er byrjuð að klæðast hlébarðamynstri sem virðist vera það allra heitasta í tískuheiminum um þessar mundir. 

Meira hlébarðamynstur!

Hrafnhildur var ekki sú eina sem klæddist hlébarðamynstri í vikunni. Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, og útvarpsmaðurinn Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B, voru báðir í hlébarðamynstri!

... og enn meira hlébarðamynstur!

Friðþóra Sigurjónsdóttir, kærasta Patriks Altasonar, var í trylltu loðvesti með hlébarðamynstri um helgina!

Allt upp á 10!

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður og eigandi Andreu í Hafnarfirði brá undir sig betri fætinum og fór til Danmerkur. Nánar tiltekið til Árósa en þar klæddi húns sig upp á. 

Ekkert djamm - bara fjölskyldulíf! 

Birgitta Líf Björnsdóttir var tíður gestur á skemmtistöðum Reykjavíkur en nú hefur fjölskyldulífið tekið við en hún og Enok Jónsson eignuðust son á dögunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál