Það var góð stemning á Instagram í síðustu viku. Fræga fólkið er komið í vororkuna og því fylgja tilheyrandi skvísu- og töffarastælar. Patrik Atlason lét fyrir sér fara og einkaþjálfarinn Hafdís Björk Kristjánsdóttir hélt upp á fermingu í fjölskyldunni með Kleina sínum.
Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir er komin á ról og fer bleiki liturinn henni vel.
Fasteignasalinn og dansarinn Tara Sif Birgisdóttir naut lífsins á uppáhaldsstað Íslendinga, Tenerife á Spáni, með fjölskyldunni.
Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari var í skýjunum með fermingardag sonar hennar.
Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og markaðsstjóri World Class, skellti sér til Spánar með fjölskyldunni.
Fanney Ingvarsdóttir, markaðsfulltrúi Bioeffect og fyrrverandi fegurðardrottning, skartaði glæsilegum síðkjól á árshátíð!
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, skemmti sér konunglega í afmælisveislu leikkonunnar Ebbu Katrínar Finnsdóttur.
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, henti í myndaveislu á Instagram.
Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir skellti sér í myndatöku.
Leikkonan og Reykjavíkurdóttirin Þórdís Björk Þorfinnsdóttir var smart í mosagrænu fatasetti sem sýndi vaxandi óléttukúluna.
Rúrik Gíslason var flottur í tauinu er hann renndi sér niður snævi þaktar brekkur í páskafríinu.
Handboltakappinn Bjarki Már Elísson fagnaði frábærum árangri ungverska liðsins Veszprém.
Söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, betur þekkt sem GDRN, rölti um götur Ísafjarðar á dögunum.
Helga Margrét Agnarsdóttir, lögfræðinemi og áhrifavaldur, er eins og lóan, til í vorið.
Íslenska athafnakonan Sara Piana sýndi brúnan líkamann á Instgram á dögunum. Hún liggur ekki á sólarströnd til þess að fá far eftir sundfötin!
Hjónin Mikael Torfason og Stefanía Berndsen eru flutt til Bandaríkjanna. Þau hafa tekið upp bandarískar hefðir eins og að fara í vorfrí eða „Spring Break“ eins og kanarnir kalla fríið.
Högni Egilsson og Snæfríður Ingvarsdóttir eiga von á barni. Þau skelltu sér til New York saman áður en barnið kemur.