Vikan var sólrík og skemmtileg á Instagram þrátt fyrir rigningu, rok og snjókomu hér heima á klakanum. Vinkonurnar Sunneva Eir Einarsdóttir og Jóhanna Helga Jensdóttir skelltu sér upp í sumarbústað og tóku gellumyndir á meðan Rúrik Gíslason naut lífsins á Coachella-tónlistarhátíðinni þar sem hann fór meðal annars í tökur fyrir þýska bílaframleiðandann BMW.
Tónlistarkonan Laufey Lín Bing Jónsdóttir heldur áfram sigurför sinni um heiminn.
Sunneva Eir Einarsdóttir er komin í sumarfíling.
Tónlistarkonan Bríet Ísis Elfar töfraði fram seiðandi tóna á tónleikum hennar í Danmörku. Bríet frumsýndi einnig nýjan háralit sem minnti marga á ævintýrakonuna Löru Croft.
Brynhildur Gunnlaugsdóttir klæddi sig í betri fötin og kíkti út á lífið.
Forsetaframbjóðandinn Jón Gnarr kíkti í heimsókn til Jóhönnu á Háafelli og fékk mynd af sér með kiðlingum.
Jóhanna Helga Jensdóttir beraði óléttukúluna í bústaðarferð með vinkonum sínum. Hún tilkynnti nýverið á samfélagsmiðlum sínum að von væri á stækkun í fjölskyldunni.
Berglind Pétursdóttir, jafnan kölluð Berglind festival, var stórglæsileg í hlébarðamynstri á árshátíð Rúv.
Patrik Atlason, þekktur undir listamannsnafni sínu Prettyboitjokko, dressaði sig upp, drakk Nocco og kíkti á djammið.
Forsetaframbjóðandinn Ásdís Rán Gunnarsdóttir birti fallega mæðgnamynd í tilefni af 17 ára afmæli dóttur sinnar.
Ein hraustasta kona Íslands, Annie Mist Þórisdóttir, er komin á steypirinn og bíður með eftirvæntingu eftir öðru barni sínu.
Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason skemmti sér konunglega á Coachella-tónlistarhátíðinni, en þar voru margar af frægustu stjörnum heims samankomnar til að hlusta á góða tónlist.
CrossFit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir tilkynnti að hún muni ekki taka þátt í undankeppni heimsleikana í CrossFit í ár vegna bakmeiðsla.
Flugfreyjan og fyrrverandi fegurðardrottningin Hugrún Egilsdóttir naut veðurblíðunnar í Lundúnum.
Þjálfarinn Sandra Björg Helgadóttir átti ljúfar stundir í sólinni í Los angeles ásamt yngri systur sinni Arnfríði Helgadóttur.
Tónlistarkonan Katrín Myrra Þrastardóttir fagnaði afmæli sínu með stæl í trylltu hlébarðadressi.
Olga Helena Ólafsdóttir, annar eigandi barnavöruverslananna Von Verslun og Bíum Bíum, á von á sínu þriðja barni og fagnaði því með sínum nánustu í glæsilegu steypiboði.
Ljósmyndarinn Eydís María Ólafsdóttir tók fallegar myndir um helgina á ferðalagi sínu um suðurlandið.
Áhrifavaldurinn Móeiður Lárusdóttir skellti sér í sannkallaða vinkonuferð til Porto Cheli í Grikklandi.
Heilsumarkþjálfinn Bryndís Hera Gísladóttir skemmti sér vel um helgina. Í partíinu voru einnig maðurinn hennar Ásgeir Kolbeins, snyrtifræðingurinn Gurry Jóns, athafnakonan Lína Birgitta Sigurðardóttir og fyrrverandi knattspyrnukappinn Rúrik Gíslason.