Katrín hertogaynja af Cambridge klæddist beige-lituðum 33.000 króna kjól frá Reiss þegar Obama-hjónin komu í heimsókn. Nú er raunveruleikastjarnan Lydia Bright, úr þáttunum The Only Way Is Essex, búin að fá sér alveg eins kjól. Hún var mynduð í sínum á dögunum.
Þótt þetta sé nákvæmlega sami kjóllinn þá bera Katrín kjólinn miklu betur. Það gæti verið stærðin á kjólunum því kjóll Katrínar er mun rýmri en kjóll Lydiu. Þetta sannar þá kenningu að konur eiga aldrei að kaupa sér of lítil föt, því þau geta bætt á okkur nokkrum kílóum.