Leikkonan Sarah Jessica Parker er ennþá í miklu uppáhaldi hjá öllum tískupæjum veraldar eftir að hún lék Carrie Bradshaw í Beðmálum í borginni. Og leikkonan er alveg jafn mikið skvísa og hún var þá.
Í gær var hún á ferð um West Village, þar sem hún býr, og klæddist hún þröngu gráu pilsi við blaizer-jakka. Vegna hitans sem er í New York núna var hún berleggjuð. Eins og sést á myndunum er hún ekki með neina appelsínuhúð. Ætli hún sé farin að stunda LPG-tækið sem Madonna sefur í? Það minnkar appelsínuhúð og tónar líkamann. Það er einmitt hægt að komast í þessa meðferð hérlendis hjá Líkamslögun á Höfðatorgi.