Langar þig að fá frísklega áferð á húðina og glóa af fegurð og yndisþokka? Þá er farðinn Capture Totale frá Dior svarið fyrir þig. Hann jafnar út húðlitinn og framkallar silkimjúka og lokkandi áferð. Andlitið verður alls ekki "of mikið farðað" og er áferðin náttúruleg.
Þessi farði er í uppáhaldi hjá þeim konum sem gera kröfur um gott og frísklegt útlit. Það er auðvelt að bera farðann á. Hann kemur í glasi með pumpu og er bæði hægt að bera hann á með höndunum eða með farðabursta.
Farðinn inniheldur serum sem gerir það að verkum að hann þurrkar ekki upp húðina heldur mýkir hana upp.
Það er því ekkert skrýtið að leikkonurnar Natalie Portman og Sharon Stone skuli nota farðann.
Farðinn kemur í nokkrum litum og ætti kvenpeningurinn ekki að lenda í vandræðum með að finna lit við hæfi. Enda er ekkert eins ósjarmerandi og of dökkur farði á glæsilegum konum.