Þessi pía er algerlega með'etta

Chloe Moretz.
Chloe Moretz. mbl.is/Bang

Hvernig er hægt að vera fædd árið 1997 en vera miklu meiri skvísa en allar hinar til samans? Jú, ef þú heitir Chloe Moretz. 

Þótt stúlkan sé nýorðin táningur er hún nú þegar búin að leika í nokkrum kvikmyndum. 

Hún stal algerlega senunni þegar hún mætti kampavínsboð Gulu ekkjunnar í Sussex í Suður Englandi. 

Chloe mætti í kremlituðum samfesting og var með myntugrænt naglakk á nöglunum og stóran hatt. Með þessu dressi spældi hún allar heimsins skvísur enda var hún ótrúlega smart. Það versta er að við hinar myndum örugglega vera eins og kjánar í þessum fötum (enda fæstar fæddar 1997). 

Chloe Moretz.
Chloe Moretz. mbl.is/Bang
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda