Enn á ný hefur ítalska Vogue náð að gera allt vitlaust en á forsíðu nýjasta tölublaðs þeirra má sjá fyrirsætuna Stellu Tennant með korsilett sem reyrt er um mitti hennar. Er forsíðan tileinkuð Ethel Granger en hún er þekkt fyrir að hafa verið með grennsta mitti allra tíma. Klæddist hún iðulega sérhönnuðum korsilettum og nú hefur ítalska Vogue endurtekið leikinn.
Mönnum sýnist sitthvað um myndirnar, hvort heldur þær þykja óviðeigandi eða fallegar en enn á ný virðist Ítölunum takast að vekja usla með umfjöllun sinni en margir vilja meina að forsíðan hefji til vegs og virðingar alltof horaðar staðalímyndir sem séu engum hollar.