Stækkar brjóstin um heila skálastærð á mánuði

Brjóstin á Maríu Carey eru í stærri kantinum.
Brjóstin á Maríu Carey eru í stærri kantinum.

Serumið Bust Fix gæti mögulega þýtt endalok fylltra brjóstahaldara og kostnaðarsamra lýtaaðgerða en það er nýtt líkamsserum sem getur stækkað brjóstin um allt að ¾ hluta skálastærðar á einungis fjórum vikum.

Þessi meðferð, sem hefur fengið viðurnefnið „brjóstastækkun úr túbu“, virkar þannig að serumið örvar myndun og geymslu náttúrulegra fitufrumna í brjóstunum og eykur stærð þeirra.

Serumið, Bust Fix, rýkur út líkt og heitar lummur og á hæsta tímapunkti voru seldar 1000 túbur á mínútu. Í fyrrakvöld seldust 100.000 stykki á netinu á heimasíðu Boots. 

Serumið inniheldur efni sem kallast „mangosteen“ og er tekið úr ávöxtum en það eykur framleiðslu fitusýra í brjóstvef. Það stækkar einnig fitufrumurnar og blæs í þær lífi. Það sem skilur þessa töfralausn frá öðrum collagen-örvandi kremum er að þau sem fyrir eru á markaði vinna á húðinni í kringum brjóstin frekar en fitunni undir húðinni eins og nýja serumið gerir. 

Gerðar voru rannsóknir á 6000 konum og 2 af hverjum 3 fóru upp um hálfa skálastærð eftir 12 vikur en nánast fjórðungur þeirra fór upp um ¾ hluta skálastærðar. 85% kvennanna sem tóku þátt fundu mun á brjóstunum eftir að hafa notað Bust Fix. Rannsóknir húðvísindamanna gáfu til kynna að Bust Fix eykur framleiðslu fitusýra (ferli sem kallast lipogenesis) um 57% á 5 klukkustundum. 

Notandi Bust Fix segir að hún hafi farið frá því að vera 32C og yfir í 32D á aðeins einum mánuði. Hún segir að hún hafi verið efins í fyrstu en eftir að hafa notað serumið kvölds og morgna í 2 vikur hafi hún strax fundið að brjóstin voru orðin stinnari og þrýstnari og að brjóstahaldararnir voru orðnir heldur þröngir. 

Fyrir þær sem eru orðnar þreyttar á að leita að hinum fullkomna „push-up“ haldara og vilja ekki leggjast undir hnífinn gæti serumið verið góð lausn. Serumið fæst fyrir tæp 17 pund eða rúmar 3000 íslenskar krónur.

Bust Fix brjóstastækkunar serumið.
Bust Fix brjóstastækkunar serumið. mbl.is/Boots
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda