Það tók 31 par af vængjum, 38 módel og 69 mismunandi dress til þess að gera þessa sýningu Victoria‘s Secret að þeirri glæsilegustu og dýrustu hingað til.
Kanye West kom fram með sérstaka útgáfu af lagi sínu, Stronger, og kallaði hann óvænt fram á sviðið Jay-Z við gífurlegan fögnuð áheyrenda. Nicki Minaj kom einnig fram á sýningunni í skrautlegum klæðum og Adam Levine, söngvari Maroon 5 söng á sviðinu en tók sér tíma til þess að taka í hönd kærustu sinnar, Anne Vyalitsina, sem einnig tók þátt í sýningunni.
Sýningin var skemmtileg og lífleg og voru hin ýmsu þemu sjáanleg eins og ballettþema, neðansjávarþema og ofurengla þema.
Heimildir herma að það hafi tekið meira en ár að undirbúa sýninguna sem átti sér stað í New York í gærkvöldi og heilan her hönnuða, saumafólks og aukahlutahönnuða.
Frá því sýningin hófst hefur hún stækkað allverulega. Fyrsta sýningin kostaði 12 þúsund dollara en sýning gærkvöldsins kostaði hvorki meira né minna en 12 milljónir dollara.