Katie Holmes er ekki þekkt fyrir mikinn skvísugang. Þegar hún er ekki á hvíta tjaldinu við störf sín klæðist hún gallabuxum og hvítum stuttermabolum og er ekki mikið í pjattinu. Myndirnar af henni fyrir skartgripamerkið H. Stern koma því á óvart. Holmes kynnir nýjustu línuna frá H. Stern og á án efa eftir að selja grimmt út á myndirnar af sér.
Holmes hefur aldrei verið kynþokkafyllri og flottari en einmitt á þessum myndum. Förðunin passar vel við hárgreiðsluna, brúnkuna og skartgripina. Á sumum myndunum er hún nánast nakin.
Í viðtali á dögunum sagðist Holmes vera til í að prófa eitthvað nýtt og hafi farið út fyrir þægindarammann með því að sitja fyrir og vera andlit H. Stern. Eitt er víst að hún ætti að fara miklu oftar út fyrir rammann! Það er svo leiðinlegt þegar fólk kemur aldrei á óvart.