Anne Hathaway hefur horast ískyggilega mikið. Leikkonunni var gert að létta sig á mettíma fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Les Miserables, til að ná að túlka hina helsjúku vændiskonu Fantine á sannfærandi hátt.
Fullyrt er að Hathaway hafi misst 10 kíló síðastliðnar vikur en hún er 173 cm að hæð og var komin niður í 52 kíló þegar síðast fréttist.
Til leikkonunnar sást á ströndinni í Miami á dögunum og var hún þá aðeins skugginn af sjálfri sér. Hún er þekkt fyrir að taka hlutverk sín mjög alvarlega og vinir og fjölskylda hafa miklar áhyggjur af heilsufari hennar.
Kvikmyndin Les Miserables, í leikstjórn Toms Hoopers, verður frumsýnd í desember en með önnur aðalhlutverk fara Hugh Jackman, Russell Crowe, Amanda Seyfried og Eddie Redmayne.