Lady Gaga klæddi sig eftir veðri

Lady Gaga var með hatt og klæddist grárri ullarslá þegar …
Lady Gaga var með hatt og klæddist grárri ullarslá þegar hún mætti til Reykjavíkur. . mbl.is/Styrmir Kári

Söngkonan Lady Gaga klæddist glæsilegri grárri ullarslá þegar hún lenti á Reykjavíkurflugvelli í morgun. Hún var í pilsi innanundir, í svörtum hælum með hatt á höfði. Hárið á söngkonunni er óvenju venjulegt þessa dagana eða sítt og kastaníubrúnt á litinn. Hatturinn bjargaði hárgreiðslunni í morgun því það hellirigndi þegar ungfrú Gaga lenti í Reykjavík.

Einkaflugvél söngkonunnar lenti tæplega hálftíu í morgun en söngkonan sjálf kom ekki út úr vélinni fyrr en klukkutíma síðar. Ekki er vitað hvað hún var að gera um borð í vélinni í klukkutíma en miðað við klæðaburð hennar hefur hún líklega verið að punta sig.

Lady Gaga mun taka við viðurkenningu úr LennonOno-friðarsjóðnum í Hörpu í dag kl. 14.00 og er mikil öryggisgæsla í Hörpu vegna afhendingarinnar.

Meðan á dvöl söngkonunnar stendur hefur hún aðsetur á Hótel Borg.

Lady Gaga fyrir utan Hótel Borg í morgun.
Lady Gaga fyrir utan Hótel Borg í morgun. mbl.is/Styrmir Kári
Lady Gaga hitti aðdáanda sinn fyrir utan og gaf honum …
Lady Gaga hitti aðdáanda sinn fyrir utan og gaf honum eiginhandaráritanir. mbl.is/Styrmir Kári
Lady Gaga var kát er hún kom til Íslands í …
Lady Gaga var kát er hún kom til Íslands í morgun. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda