Shakira farðar sig sjálf

Shakira reynir að halda í náttúrulegt útlit sitt eftir bestu …
Shakira reynir að halda í náttúrulegt útlit sitt eftir bestu getu mbl.is/AFP

Söngkonan Shakira segist vera hógvær þegar kemur að útliti en hún kýs að farða sig sjálf í staðinn fyrir að notast við förðunarfræðinga.

Shakira er dómari í þáttunum The Voice ásamt Usher, Adam Levina og Blake Shelton en hún segist vera eini dómarinn sem hefur ekki sinn eigin förðunarfræðing á tökustað. „Ég mála mig sjálf fyrir myndböndin mín og fyrir flestar myndatökur. Ég er eini dómarinn í The Voice sem tek ekki minn eigin förðunarfræðing með mér,“ segir söngkonan kólumbíska.

„Ég hef alveg unnið með förðunarfræðingum sem mér líkaði vel við en yfirleitt geri ég þetta bara sjálf,“ segir Shakira sem kveðst ekki nota mikið af snyrtivörum eða hárvörum.

„Ég vil halda í náttúrulegt útlit mitt. Ég nota farða frá Tarte merkinu en hann er olíulaus, vatnsheldur og laus við öll slæm aukaefni. Ég set hann ekki á allt andlitið mitt heldur bara á ákveðin svæði. Svo nota ég yfirleitt maskara en stundum bretti ég bara augnhárin á mér og sleppi maskara.“

Söngkonan segist ekki nota sterk mótunarefni í hárið. „Sólin lýsir upp hárið á mér og gefur því fallegan blæ. Ég set ekkert í hárið á mér nema hárnæringu þegar ég kem heim af ströndinni.“

Shakira farðar sig sjálf fyrir myndbönd og myndatökur
Shakira farðar sig sjálf fyrir myndbönd og myndatökur mbl.is/AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda