Hár fjármálaráðherrans, Bjarna Benediktssonar, hefur gránað umtalsvert síðan hann tók við embættinu í vor. Þegar ég hitti Bjarna í Hörpu í gær og spurði hann út í háralitinn vildi hann ekki kannast við að hárið á honum væri að grána. Þegar myndir frá því í vor eru skoðaðar og bornar saman við myndir sem teknar voru um helgina sést að hárið hefur gránað töluvert á hálfu ári.
Bjarni hefur aldrei litað á sér hárið og ætlar ekki að byrja á því núna. Það að hárið sé farið að grána ætti þó alls ekki að koma honum á óvart því hann er enginn unglingur lengur enda 43 ára gamall.