Eflaust hefur bit Luis Suárez, framherja Úrúgvæ, ekki farið framhjá mörgum, en fyrir þá sem vita ekki um hvað málið snýst þá beit Suárez, varnarmann ítalska landsliðsins, Giorgio Chiellini. Hann er og verður sennilega sá leikmaður sem flestir þekkja nafnið á, eftir heimsmeistarakeppnina sem fram fer í knattspyrnu í Brasilíu þessa daganna.
Þrátt fyrir að bitið sé vissulega ferlegt og hafi verið fordæmt um víða veröld hafa tennur ekki síður en bit komist í umræðuna. Og eftir alla þessa tannumræðu valdi Smartland þá Íslendinga sem þykja hvað best tenntir. Listinn er sannarlega ekki tæmandi.
Þess má geta að margir halda að eina ráðið til þess að fá hvítar tennur sé með því að fara í tannhvíttun, en svo er alls ekki. Eins og greint hefur verið frá, þá eru til ýmis góð ráð sem hægt er að nýta sér til þess að fá fallega hvítar tennur.