Kjóll fyrirsætunnar Samönthu Hoops stal gjörsamlega senunni á frumsýningu kvikmyndarinnar Magic Mike XXL á fimmtudaginn. Um mjög efnislítinn og gegnsæjan kjól er að ræða þannig að brjóst fyrirsætunnar blöstu nánast við viðstöddum.
Aðalleikari kvikmyndarinnar, Channing Tatum, fékk þó líka einhverja athygli en hann mætti með eiginkonu sinni, leikkonunni Jennu Dewan.
Kvikmyndin Magic Mike XXL er væntanleg í íslensk bíóhús í júlí.