Ólafur Ragnar Grímsson mætti með gult munstrað bindi í útvarpsþáttinn Sprengisand á sunnudaginn. Hann hefur sést áður með bindið en hann skartaði því í kosningabaráttunni 2012.
Þeir sem til þekkja segja að bindið sé af miklum gæðum og því afar mikil synd ef það hefði bara verið notað einu sinni. Svo eru enn aðrir sem hafa velt því fyrir sér hvort forsetinn sé að gefa hint með bindisvalinu og að hann ætli í raun að gefa áfram kost á sér í forsetakosningunum 2016.