Poppdrottningin Beyoncé Knowles er þekkt fyrir að vera ávallt óaðfinnanleg til fara, en hún lætur sjaldan sjá sig illa til hafða. Þá er innihald fataskápsins hennar eitthvað sem flestar konur geta einungis látið sig dreyma um.
Um síðustu helgi skelltu Beyoncé og eiginmaður hennar sér á körfuboltaleik, og nýtti drottningin tækifærið og puntaði sig fyrir allan peninginn.
Fyrir valinu varð glæsilegt dress úr smiðju Gucci, en samkvæmt People kostuðu herlegheitin yfir 7.560 Bandaríkjadali, eða rúmar 800 þúsund íslenskar krónur.
Drottningin virðist hafa tekið ástfóstri við hönnun ítalska tískurisans, en hún klæddist forláta silkislopp frá Gucci fyrr á árinu.
Frétt mbl.is: Geislaði í Gucci-slopp