Matarsódi er til margra hluta nytsamlegur. Ekki einungis gerir hann kraftaverk við þrif heldur er hann líka náttúruleg snyrtivara og þar að auki hræódýr.
Á heilsusíðunni Mind Body Green er að finna uppskrift að fyrirtaks maska þar sem matarsódinn leikur lykilhlutverk. Er maskinn sérlega mildur en ekki einungis er matarsódinn basískur og hentar þannig vel til að jafna sýrustig húðarinnar, auk þess sem hann stillir af starfsemi fitukirtlanna og losar um dauðar húðfrumur.
Matarsódamaski:
Aðferð: Þvoið ykkur fyrst í framan með volgu vatni og mildri náttúrulegri sápu. Berið maskann á rakt andlitið og nuddið í hringlaga hreyfingum yfir enni, kinnar, nasavængi og jafnvel varir, passið bara að forðast augnsvæðið. Eftir 2-3 mínútur hreinsið af með volgu vatni og þurrkið andlitið varlega. Lokið síðan svitaholunum með mildu andlitsvatni (t.d. rósavatni eð öðru 100% náttúrulegu) og mjúku kremi.