Systkinin Daníel og Ásta Sigurðarbörn á Lancer Evo 6 sigruðu í 2. umferð Pirelli mótaraðarinnar í rallakstri sem fram fór í dag. Eknar voru leiðir um Gjábakka, Tröllháls og Uxahryggi.
Daníel og Ásta hafa sigrað í báðum röllum þessa árs og leiða keppni á Íslandsmótinu. Í 2. sæti í dag urðu Sigurður Bragi Guðmundsson og Ísak Guðjónsson á Lancer Evo 7. Þriðju urðu Jón Bjarni Hrólfsson og Borgar Ólafsson á Subaru Impreza.