Hilmar Bragi Þráinsson og Davíð Jón Ríkharðsson á MMC Lancer Evo VII sigruðu í Frumherja-ralli BÍKR sem að lauk í gær.
Þeir komu í mark tæpum 49 sekúndum á undan Jóni Erni Ingileifssyni og Sigurjóni Þór Þrastarsyni á MMC Lancer Evo VI í mark. Í þriðja sæti, 36 sekúndum á eftir, urðu Valdimar J. Sveinsson og Heimir Snær Jónsson á Subaru Impreza STi.
Í jeppaflokkinn sigruðu Þórður Ingvarsson og Björn Ingi Björnsson og 4x4 non Turbo flokkinn sigruðu þeir Guðmundur Höskuldsson og Ólafur Þór Ólafsson.
15 bílar voru skráðir til keppni en einungis 8 bílar komust í mar. Á meðal þeirra sem að féllu úr keppni voru Íslandsmeistarinn frá í fyrra, Jón Bjarni Hrólfsson og Halldór Gunnar Jónsson.