KR hafði betur gegn Keflavík í Lengjubikarkeppni KSÍ í kvöld, 4:1, en leikurinn fór fram í Reykjaneshöll. Gunnlaugur Jónsson skoraði fyrir KR á 22. mínútu, Ingimundur Óskarsson bætti við öðru marki á 65. mínútu fyrir KR. Hallgrímur Jónasson skoraði fyrir Keflavík á 67. mínútu en hann skoraði síðan sjálfsmark á 83. mínútu. Guðmundur Gunnarsson skoraði fjórða mark KR undir lok leiksins.