Magnús Gylfason hættur þjálfun Víkings

Magnús Gylfason er hættur með Víkinga.
Magnús Gylfason er hættur með Víkinga. Ómar Óskarsson

Magnús Gylfason er hættur störfum sem þjálfari knattspyrnuliðs Víkings úr Reykjavík, sem á laugardaginn féll úr Landsbankadeild karla. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Víkingar sendu frá sér en þar er sagt að samkomulag hafi verið gert um að slíta samstarfinu, í algjörri sátt beggja aðila. Magnús hefur þjálfað Víkinga undanfarin tvö ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert