Stefán Þórðarson mun leika með ÍA á næstu leiktíð í Landsbankadeildinni í knattspyrnu. Stefán er á heimleið eftir að hafa leikið með Norrköping í sænsku 1. deildinni undanfarin ár. Hann er 32 ára gamall framherji og mun styrkja lið ÍA verulega en frá þessu er greint á heimasíðu ÍA.