"Jú, það er búið að ganga frá því að ég fái mig lausan hjá FH og þá kemur bara eitt lið til greina. Ég ætla að spila með Fjölni á næsta ári, sagði Ólafur Páll Snorrason knattspyrnumaður í samtali við mbl.is í dag. Ólafur Páll er uppalinn hjá Fjölni og má því segja að hann sé að snúa heim á nýjan leik eftir nokkra fjarveru.