Vanda Sigurgeirsdóttir verður næsti þjálfari kvennaliðs Breiðabliks í knattspyrnu samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Hún tekur við af Jörundi Áka Sveinssyni sem ráðinn hefur verið aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar, þjálfara bikarmeistara FH í karlaflokki.
Vanda hefur síðustu ár verið þjálfari kvennaliðs Tindastóls á Sauðárkróki og þar áður hjá karlaliði Neista á Blönduósi.