KR sigraði Íslandsmeistaralið Vals, 4:0, í úrslitum deildabikarkeppni KSÍ í kvöld en leikið var í Egilshöll. Hólmfríður Magnúsdóttir kom KR yfir í fyrri hálfleik með marki á 32. mínútu en þannig var staðan í hálfleik. Katrín Ómarsdóttir skoraði fyrir KR á 70. mínútu og fjórum mínútum síðar misstu Valsmenn leikmann útaf sem fékk sitt annað gula spjald. Hólmfríður skoraði aftur fyrir KR á 74. mínútu og Katrín innsiglaði stórsigur liðsins með marki á 84. mínútu.