Íslandsmeistarar Vals lögðu bikarmeistara FH 2:1 í Meistarakeppni KSÍ í kvöld. Pálmi Rafn Pálmason var á skotskónum í kvöld og skoraði bæði mörk Vals. Hið fyrra á 16. mínútu og sigurmarkið á 59. mínútu.
Bæði mörk Vals komu eftir undirbúning Guðmundar Benediktssonar. Atli Viðar Björnsson kom FH yfir strax á 4. mínútu leiksins. Dennis Bo Mortenssen leikmaður Vals varð fyrir meiðslum og þurfti að yfirgefa völlinn strax á 11. mínútu.
FH-ingum tókst að setja Valsmenn undir nokkra pressu á lokakafla leiksins en Hlíðarendapiltar þraukuðu og hömpuðu sínum öðrum titli á nokkrum dögum.