Val spáð sigri í Landsbankadeild karla

Íslandsmeisturum Vals var í dag spáð sigri í Landsbankadeild karla 2008 á hinum árlega kynningarfundi fyrir Íslandsmótið í knattspyrnu sem nú stendur yfir í Smárabíói í Kópavogi.

Fjölni og Grindavík er spáð falli en í ár leika í fyrsta skipti 12 lið í efstu deild karla. Spáin lítur þannig út en það eru þjálfarar, fyrirliðar og forráðamenn liðanna sem greiða atkvæði:

1. Valur 405
2. FH 362
3. KR 343
4. ÍA 323
5. Breiðablik 294
6. Fylkir 241
7. Fram 207
8. Keflavík 199
9. HK 120
10. Þróttur R. 116
11. Fjölnir 108
12. Grindavík 90

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert