Forráðamenn Keflavíkur í Landsbankadeild karla hafa boðað til fréttamannafundar síðar í kvöld þar sem að tilynnt verður um endurkomu þeirra Harðar Sveinssonar og Hólmars Rúnarssonar.
Þeir hafa báðir leikið með Silkeborg í næst efstu deild í Danmörku en liðinu tókst ekki að komast upp í efstu deild á ný á leiktíðinni sem er að ljúka í Danmörku. Hörður er framherji en Hólmar leikur á miðjunni og verða þeir líklega í leikmannahóp Keflvíkinga á morgun þegar liðið tekur á móti Íslandsmeistaraliði Vals kl. 16:15 í Landsbankadeild karla á morgun.