Olga Færseth leikur með KR í sumar

Olga Færseth, til vinstri, verður með KR-ingum í ár.
Olga Færseth, til vinstri, verður með KR-ingum í ár. mbl.is/Golli

Knattspyrnukonan reynda Olga Færseth mun leika með KR í sumar en útlit var fyrir að hún myndi ekkert vera með liðinu á komandi keppnistímabili.

Helena Ólafsdóttir, þjálfari KR-inga, staðfesti þetta við Fótbolta.net í gærkvöld en ekki er ljóst hvort hún kemur inn í lið KR strax í fyrsta leiknum í Landsbankadeildinni.

Olga, sem er 32 ára, er langmarkahæsti leikmaðurinn í efstu deild hér á landi frá upphafi og hefur skorað 265 mörk í 202 leikjum.

Fréttin á Fótbolta.net.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert